20.1.05

Höddi focking Magg

Ég hata Hödda Magg! Ef það er einhver einstaklingur sem ætti aldrei að koma nálægt lýsingu á fótboltaleik þá er það Höddi Magg. Merkilegt hvað hann getur einfaldlega sogið alla skemmtun úr einum leik. Var alveg að vera brjálaður á honum í gær þegar hann lýsti Exeter - ManUtd. Ég tala nú ekki um þegar hann lýsti Liverpool - Watford. Honum er bara ummunað um að reyna að segja eitthvað gott um andstæðinga Liverpool eða ManUtd. Get alla vega sagt það að bara fyrir þá staðreynd að með færslunni yfir á Skjá 1 hafi leikjum í lýsingu hans fækkað til muna þá er ég mjög fegin að enski boltinn er þar sem hann er.