Sjóræningjar og fallhlífarstökk
Jæja, ég veit ég ætti að vera duglegari að skrifa eitthvað hérna fyrir þær 3 persónur sem lesa þetta blessaða blogg. En einhvern vegin þá finn ég mér eitthvað annað að gera en að skrá niður nokkrar línur. Það þarf ekkert endilega að vera eitthvað uppbyggilegt en alltaf er það eitthvað. Álagið í skólanum er þó að aukast því ekki eru nema 4 vikur í próf. Ég er svona sæmilega stressaður fyrir þetta allt saman en þetta mun allt reddast eins og íslenskt orðatiltæki staðfestir.
Á föstudaginn var haldinn kvöldverður hérna á Railway sem átti að vera í formlegri kantinum. En þar sem þema kvöldsins var sjóræningjar var merkjum þeirra haldið mikið á lofti. Sumir tóku þemað full alvarlega og skrýddust leigðum búningum á meðan aðrir létu sér nægja að kaupa plast sverð í $2 búðinni á Queen Street. Sá sem stóð þó upp úr var James kallinn sem tók þemað svo alvarlega að hann þambaði romm allt kvöldið. Mikið var talað um að honum yrði hent út af campusnum daginn eftir en allt kom þó fyrir ekki og hann er enn hér.
Á boðstólum voru ýmsar kræsingar, allt frá girnilegur nautakjöti til grillaðs kjúklings. Þetta var hlaðborð af bestu gerð og var sérstaklega áhugavert að hugsa til þess að við borguðum ekki nema $10 fyrir þetta allt saman. Og fengum við meira að segja að eiga vínglösin sem merkt voru Railway. Kvöldið var allt hið skemmtilegasta og var dáldið skondið hvernig fólki tókst að koma inn í umræðuna ýmsum sjóræningja máltækjum....arrrrr
Á sunnudaginn gerði ég þó eitt sem mig hefur lengi langað til að gera. Ég ásamt nokkrum af campusnum skelltum okkur í fallhlífarstökk með kennara. Ég gat alveg sagt að ég var ekki fyrir vonbrigðum með stökkið þótt að adrenalín flæðið hafi verið mun minna heldur en ég bjóst við. Við skulum samt orða það þannig að ég er mikið að spá í að punga út dágóðri summu til að fara á námskeið sem endar með fyrsta einstaklingsstökkinu þínu.
Við vorum sótt klukkan 13:00 á sunnudaginn hérna á Railway og keyrðum í 40 mínútur að stökkstaðnum. Þetta var bara svona svipaður flugvöllur og Sandskeiðið en í stað hrauns og fjalla voru þarna grasi grónir hólar og kindur á beit. Það var eiginlega ótrúlegt hvað allir voru rólegir á meðan við biðum og það hvarflaði ekki einu sinn að neinum að hætta við. Eitthvað tilboð var í gangi þarna sem leyfði þér að borga um 5% meira til að stökkva úr 14.000 fetum í stað 12.000 feta, og var ég eini sem lagði í það.
Þetta var bara eitthvað svo skrýtið allan tíman. Í fyrsta lagi fékk ég aldrei sting fyrir hjartað eða kvíða eins og þegar ég fór í teygjustökkið eða áður en rússíbani leggur af stað. Maður sat bara rólegur í flugvélinni og þegar tímin var komin hoppaði maður út úr vélinni kyrfilega bundin við kennaran. Þetta var eitthvað svo óraunverulegt á meðan maður sveif í frjálsu falli í átt að jörðinni. Síðan þegar fallhlífin opnaðist tók bara við skemmtilegt svif niður til jarðar. Eina sem gerði þetta ekki skemmtilegt var hvernig ólarnar hertust upp í nárann á mér og var ég því mjög feginn þegar ég lenti og gat losað um þær. En upplifunin var einstök og eins og ég sagði hér að ofan þá er ég mikið að spá í að eyða smá pening í að fá leyfi í einstaklingsstökki. En það yrði þó örugglega ekki fyrr en eftir jólin.

6 Comments:
sæll vinur
Mér finnst þetta frábært hjá þér að fara í þetta, fjandinn að ég þyrði því. En það er örugglega miklu skemmtilegra að fara einn í svona stökk, ég er sammála þér í því. En sonna okkar á milli líst mér aðeins betur á kajak hugmyndina :) Jæja en það líður að því að við sjáumst nú er ekki nema rúmur mánuður, bæði sma kvíði og líka spenningur fyrir þessari löngu ferð. 14 klst til singapoore, 7 til sidney og 2,5 til þin og svo taka allt í einni ferð tilbaka.
kv gamlinn þinn
Tja, ég get bara sagt að kikkið er helv... mikið þegar maður hoppar EINN út úr flugvélinni! Enda þurfti kennarinn minn hreinlega að HENDA mér út. Mæli með því!
Hins vegar hef ég aldrei þorað aftur!
Þú ert hörkutól Halli minn og það eru fleiri en tveir sem lesa bloggið þitt, það eru allaveganna fjórir.
kveðja
lil sys
Ég væri til í að stökkva tvisvar þrisvar sinnum áður en tekið er á loft!
Ég les reglulega!!
Árni E. A.
Gott mál að nota fallhlífarstökk til að slá á prófstressið. Mundu samt að það er betra að vera stressaður fyrir próf en að glíma við örvæntingarskort :)
Halli minn ekki örvænta það les fullt af fólki blogið þitt, maður þarf bara ekki að commenta alltaf. Annars virðist þetta ferðalag þitt til nýja sjálands vera efni í ágætis ævintýrabók, hefur þú séð dreaka þarna?, þetta landslag er svo fallegt að ýmindunaraflið hleypur með mann í gönur. Rock on Halli!!
Skrifa ummæli
<< Home