Oh the drudgery
Ég verð bara að segja eins og er að síðasta vika hefur verið ein sú leiðinlegasta sem ég hef upplifað síðan ég kom hérna. Eina sem ég er búin að vera að gera er að læra á milli þess sem ég stelst til að leika mér aðeins í tölvunni. Það er meira að segja búið að vera svo lítið að gerast að ég hef ekki einu sinni smellt af einni einustu mynd síðustu tvær vikurnar. En vonandi breytist það aðeins um helgina.
Verkefnið sem ég er búin að vera að vinna að er þó reyndar frekar áhugavert en það fjallar um áhættumæt fyrir raforkukerfi og er þetta fyrir Infrastructur Asset Management. Ég er þó búin að vera frekar stressaður með þetta þar sem þetta er fyrsta alvöru ritgerðin sem ég þarf að skrifa hérna og ég hef litla hugmynd um hvað kennarinn er í raun og veru að leita að. Held þó að ég hafi tekist að koma efninu frá mér á þokkalegan máta en maður veit aldrei. Það er búið að vera læðast að mér sá lúmski grunur að ég hafi tæklað efnið einum og víðtækt en miðað við það sem maður hefur verið að heyra frá krökkunum hérnna í kringum mann þá ætti þetta að reddast.
Nú tekur bara við að galdra fram lítin fyrir lestur um þetta efni. Mun reyndar fá smá smjörþef af hvernig þetta mun fara fram og hvað ég þarf almennilega að segja. En þetta er bara 5 mínútna kynning á efninu þar sem einkunnagjöfin er 50% að þora að fara fyrir framan bekkin og kynna þetta. Versta er að ég hef bara ekki fundið góðan Farside brandara til að krydda kynninguna.
Annars var ég í einu skrýtnasta prófi sem ég tekið í síðustu viku. Hef þið hafið einhvern tíman lent í tímaþröng reynið þá að margfalda það með 10 og þá fáið þið út tíman sem ég hafði. Þetta voru bara 5 spurningar sem við áttum að svara á 45 mínútum. Eins og vanalega var ég bara rólegur á því og áður en ég vissi hafði kennarinn tilkynnt að tímin væri hálfnaðu og þá var ég rétt að byrja á dæmi númer 2. Ég náði aðeins að klára 3 dæmi og ég veit ekki einu sinni hvað mikið af því var rétt. Reyndar skal tekið fram að ég var kvefaður og þreyttur þegar prófið fór fram svo það skemmdi aðeins fyrir.
Við erum búin að stofna fótboltaklúbb hérna og ætlum okkur að spila 1 sinni í viku. Ætla að muna eftir myndavélinni í næstu viku og smella af nokkrum sinnum. Reyndar tókst mér að meiða mig í leiknum í dag en það var bara svona týpískur ég. Lenti í samstuði við annan spilara og lenti á jörðinni með vinstri hnéið fyrst. Ég þurfti að haltra heim og hnéið er ennþá að angra mig smá, á þó von á því að allt verði komið í lag á morgun eins og svo oft áður.
Um helgina er stefnan tekin á fallhlífarstökk. Krakkarnir smelltu sér um síðustu helgi til Taupo til að stökkva en gátu það ekki vegna veðurs. Ég komst ekki þar sem ég var að læra alla helgina. Við ætlum því að reyna um helgina og því er bara að krossleggja alla mögulega hluti og vonast eftir góðu veðri.

2 Comments:
Úff, fyrsta alvöru ritgerðin er alltaf heví, svo lærir maður á þessa kennara! Gúd lökk með þetta alltsaman lillibró!
sæll félagi! gaman að sjá eða lesa eða er það heyra? að þú ert að hafa það gott þarna úti og ert að skemmta þér! fótbolti?ok þú varst fínn á sínum tíma en eins og Hallur frændi þá er allt fína farið úr ykkur við þessa íshokkíiðkun!!
Skrifa ummæli
<< Home