Sunnudagsmáltíðin
Verð að segja að þetta hafi verið annsi róleg helgi hjá mér. Bæði Nacho og Chris voru að heiman svo ég hafði íbúðina alveg fyrir mig. Jahúuú, eins og það skipti miklu máli. Sameiginlega plássið okkar er svo lítið að það er varla hægt að standa við vaskinn til að smyrja sér samloku. Ég væri til í að þar hefði alla vega verið pláss fyrir smá borð sem maður gæti setið við meðan maður snæddi morgunmatinn en svo gott er það ekki. Eyddi mestan partinum af sunnudeginum í ekki neitt heldur tók bara letina á þetta og spilaði Civilization 4.
Mér var reyndar hugsað til íslenskrar lambasteikur á meðan ég japlaði á tortellini með pulsum og spaghettisósu. Ég nefnilega tók mig til aldrei þessu vant að elda mér eitthvað. Það er nefnilega hægt að telja á fingrum annarar handar hve oft ég notað eldhúsaðstöðuna hérna. Eldhúsaðstaðan sem ég hef aðgang að hérna á Railway Campus er alveg ágæt í sjálfu sér. Þetta eru gas hellur og rúmgóður ofn, síðan er hver íbúð með 1 ísskáp/frysti og skáp þar sem maður getur kannski geymt potta, pönnur, krydd og uppþvottalög.
Eina sem háir mér er að ég kann eiginlega ekki að elda fyrir einn. Allar uppskriftirnar og aðferðirnar sem ég er með í kollinum enda yfirleitt með svo mikið að ég þyrfti að taka hálfa hyllu í ísskápnum undir afganga og borða það sama út vikuna. Þar sem ég er mjög "nýjungagjarn" maður (lesist sem ferningur sem langar ekki í sama matinn dag eftir dag.) er þetta eitt af þeim atriðum sem ýta undir það að ég fái mér bara samloku upp á herbergi. Því auglýsi ég hér með eftir ábendingum um uppskriftir og aðferðir svo ég fari oftar í eldhúsið. Ég vill sérstaklega taka það fram að ábending um að minnka skammtastærðir verður ekki tekin til greina þar sem hún er of augljós.

3 Comments:
Sæll Halli minn
Þú verður að fara að læra að elda fyrir 1, mér sýnist ástandið hjá þér vera líkt og heima í Efstasundinu við sem erum vön að elda fyrir 4-5 eigum allt í einu að fara elda fyrir 2. það vill brenna við að það séu afgangar í matinn næstu daga. Mamma þín var að spá í að finna bók sem heitir eldað fyrir 2 það væri ekki úr vegi að senda þér hana líka.
kveðja frá gamla.
Það eru til allkyns matreiðslubækur, Cooking for one, campus cooking og ég veit ekki hvað! Kíktu bara á Amazon!!
Æ, æ, er komin 4. útgáfan af Civ?! Best ég haldi mig fjarri tölvubúðum á næstunni...Dr. Ravenkill Seagull.
Skrifa ummæli
<< Home