Loksin kominn heim
Er núna búinn að vera 3 daga heima og er ekki búinn að gera neitt. Ég held ég eigi það nú alveg skilið eftir 17 daga upp á fjöllum án þess að fá einu sinni helgarfrí. Dagurinn í dag á bara að fara í að horfa á fótbolta hef þó á tilfinnunginni að ég verði rekinn í burtu frá stofunni þegar nær dregur kvöldi. Sérstaklega þar sem stefnan er að vera undir sæng allan tímann.Fór einmitt í gær að skipta um afruglara svo ég gæti gerst áskrifandi af enska boltanum. Var annsi mikið að gera í verslun símans í Ármúlanum en eins og alltaf eru allir að gera svona hluti á síðustu stundu. Þurfti reyndar fyrst að sannfæra mömmu um að borga aðeins meira fyrir áskriftina sína þar sem eina leiðin til að fá BBCPrime og norrænu stöðvarnar er að kaupa allan pakkan. Held reyndar að mamma sé aðeins sáttari við þetta eftir að hún tók eftir að gæðin eru betri í nýja ruglaranum.
Mætti reyndar í smá stund í vinnuna á fimmtudaginn svona rétt til að stilla GPS tækin fyrir Indriða. Hélt smá námskeið fyrir nýja fólkið á mælingadeildinni í leiðinni. Ég hef aldrei verið samt jafn truflaður eins og þennan dag. Ætlaði að leggja mig í klukkutíma þar sem ég var frekar þreyttur en á aðeins 10 mínútum var hringt í mig 4 sinnum og lúrinn algjörlega eyðilagður.
Þetta virðist vera eitthvað þema þessa daganna þar sem svefninn var eyðilagður hjá mér í morgun. Reyndar er bara hægt að kenna hundinum um það. Týra var nefnilega kennt að opna hurðir þegar hann var lítill hvolpur. Hann sefur yfirleitt inn í hjá mér, heyrir síðan í pabba á morgnanna og opnar þá hurðina. Yfirleitt er þetta ekkert vandamál en á laugardags- og sunnudagsmorgnum þegar mamma og pabbi fara ekki strax út þá heyri ég öll samtölin þeirra og auðvitað get ég ekkert sofið þá.
Grilluðum saman strákarni í gær, svona til að kveðja Bjössa sem er að fara til Danmerkur núna eftir helgina. Var mjög gaman hjá okkur sérstaklega að rifja upp gamlar sögur frá því á menntaskólaárunum. Það var spjallað alveg fram á rauða nótt og ég held að við höfum ekki hlegið svona mikið í langan tíma. Við verðum bara að endurtaka þetta þegar strákarnir koma aftur heim.

1 Comments:
Yo þú armi bloggletingi...þú hefur hér með verið KLUKKAÐUR!
Hilsen, Dr. Ravenkill, sir.
Skrifa ummæli
<< Home