Fjör á fjöllum
Loksins þegar eitthvað skemmtilegt gerist að nóttu til hérna þá er maður ekki á næturvakt. Ég veit að margir eru ekki sammála mér en mikið svakalega eru þessir mótmælendur vitlausir. Að mótmæla virkjunarframkvæmdunum núna og fara fram á það að þær verði stövaðar er eins og biðja Hjálparsveit Skáta að setja saman alla flugeldana og hætta þegar þeir eru í miðri flugeldasýningu. Jarðraskið er þegar orðið það mikið að það er ekkert aftur snúið og halda öðru fram er vitleysisgangur.Í nótt komust mótmælendurnir inn á svæðið og ollu skemmdum á ýmsum tækjum Impregilo. Þegar löggan kom á svæðið flúðu þeir og földu sig í óbyggðunum í kring. En löggan beið bara eftir þeim þegar þeir komu til baka og talaði duglega við þá. Báðu um passa og vegabréfaáritanir svona aðeins til að hræða þá og mætti síðan með fíkniefnahund í búðirnar þeirra. Þar fundu þeir tæki og efni til notkunar og manneskjan brast bara í grát þegar þeir ýttu á eftir henni.
Fólk hérna í búðunum er almennt sammála um það að mótmælendurnir séu almennt ekki mjög umhugað um náttúruna heldur séu meira að þessu vegna athyglisþarfar. Það eru mun fleiri útlendingar heldur en Íslendingar í mótmælendabúðunum og flestir af þeim voru á mótmælunum gegn G8 þjóðunum í Skotlandi um daginn.
Að mínu mati eru þessi mótmæli "too little too late" og mótmælendur ættu frekar að einbeita sér að einhverju þarfara en þessari vitleysu.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home