Steikjandi hiti og flughrekkir
Það er óhætt að segja það ég vildi óska að við værum að mæla upp flugvöll í kaldara loftslagi. Þegar við erum úti á velli þá stöndum við í nokkur hundruð metra fjarlægð frá næsta skugga og loftkælingu. Ég þramma fram og aftur eftir flug- og aksturbrautum á meðan Jón Þór stendur kyrr við tækið. Báðir verðum við ótrúlega þreyttir og slepjulegir eftir þetta. Það skal reyndar viðurkennt að ég fæ stundum tækifæri að setjast inn í bíl, á meðan við rýmum brautina, en það virðist ekkert bæta ástandið á manni. Allur þessi hiti í sambland við vinnuálagið hefur gert það að verkum að ég er farinn að telja daganna þangað til ég kemst heim.Í gær varð smá flugatvik. Ég og Blerim vorum nýbúnir að fá leyfi til að fara aftur út á flugbraut og vorum rétt byrjaðir að mæla sniðin þegar það er kallað í talstöðina. Hann lítur upp og baðar síðan öngunum í átt að enda flugbrautarinnar og hleypur síðan af stað. Ég horfi í áttina sem hann benti og viti menn þar er lítil Cessna sem virðist vera að koma inn til lendingar. Við hlaupum eins og fætur toga í burtu en vélin flýgur lágt yfir okkur en lendir ekki. Þá byrjar turninn að kalla: "Afhverju voru þið svona hræddir?" Þá var málið að þetta var prufuvél fyrir radarinn og turninn var bara að hrekkja okkur. En ég skal viðurkenna að í nokkrar sekúndur þá hugsaði maður: "Shit, það er flugvél að fara að lenda á hausnum á mér."
Að koma hérna til að vinna fyrir þessa Svía hefur sannfært okkur að þeir viti ekkert í sinn haus. Fyrir það fyrsta vildu þeir mæla upp allar flugbrautir upp með 5 mm nákvæmni. Sem væri í lagi ef þær væru eitthvað í nánd við það að vera sléttar. Meðan ég hef verið að labba á brautunum þá sé ég að þær eru langt frá því að vera fullkomnar þannig að til þess að ná þessari nákvæmni þá væri nauðsynlegt að mæla á svona 5 cm fresti.
Síðan vilja þeir mæla upp allt svæði í kring með 2 cm nákvæmni og allt á að mælast í 10x10 m grid. Við reiknuðum út að við þyrftum um 8000 punkta bara til að mæla flug- og akbrautina. Við náum vonandi að klára allar malbiksmælingar áður en við förum heim. Þá þurfum við að koma aftur í águst að klára restina.
Við erum reyndar komnir vel á veg, þótt að við höfum nærri ekkert náð að mæla á flugbrautinni sjálfri. Vonandi náum við að klára akbrautina í dag og þá ættu næstu dagar að fara eingöngu í flugbrautina. Eftir þetta verkefni þá er vonin að ég þurfi aldrei að koma nálægt flugvöllum í sambland við Svía.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home