Þrælahald, hænur og goðsagnaslátrarar
Þegar þessari ferð er lokið má með sanni segja að ég hafi komið til Kosovo en aldrei séð landið. Við erum mættir hérna á flugvöllinn ekki seinna en klukkan níu á morgnanna og er kannski í klukkutíma að undirbúa, athuga póst (stelast í að blogga) og peppa okkur upp fyrir daginn. Síðan er þrammað um allan flugvöllinn og mælt, ef maður þarf ekki að hlaupa af flugbrautinni vegna flugvéla. Síðan hættum við í fyrsta lagi klukkan sjö um kvöldið.Reyndar hafa síðustu dagar allir farið í 13 klukkutíma vinnudaga, þannig að óhætt er að segja það að maður sé þreyttur þegar maður loksins kemst upp í rúm. Ég væri reyndar til í að sólarhringurinn væri um 3 klukkustundum lengri 2 tímar fyrir svefn og 1 tími fyrir frístundir. En maður hugsar bara um feita launatjékkan í lok mánaðarins og maður tekur gleði sína á ný.
Það er frekar skondið að koma út á morgnanna og mæta þar hænu sem er í mestu makindum að leita sér að æti. Húsið okkar er nefnilega innan hás veggjar sem umliggur það og næsta hús, en maðurinn sem leigir okkur húsið á þau bæði. Innan veggjarins er fjölskyldan síðan með matjurtagarða og hænur. Reyndar minna þessar hænur mann dáldið á íslensku hænsnin því hvít hænsni sjást ekki þar.
Ef á hverju kvöldi síðan ég kom horft á a.m.k. einn þátt af Myth Busters. Fyrir þá sem ekki vita eru þetta snilldar þættir með tveimur mönnum sem hafa unnið mikið í "special effect" hlutum á ýmsum kvikmyndum og auglýsingum. Þeir taka yfirleitt þrjár "urban legends" fyrir í hverjum þætti og reyna að endurgera þær til að dæma um hvort þær sé mögulegar eða ekki.
Sérstaklega er gaman að sjá þegar þeir eru að fjalla um einhverjar sprengirnar því ef þeim tekst ekki að ná sprengingu út úr aðferðinni sem goðsögnin segir til um þá auka þeir bara magnið af sprengiefni til að fá stóra hvell. Til dæmis þegar þeir voru að vinna í goðsögninni um klósett sprengingu með skordýraeitri. Þegar það tókst ekki þá helltu þeir slatta af byssupúðri í klósettið og sprengdu það. Ráðlegg öllum sem hafa ekki séð þessa þætti að reyna að sjá þá.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home