Ég vildi stundum að ég ætti Apple tölvu
Það er merkilegt hvað windows er skrýtið stýrikerfi. Hafði fært til nokkrar skrár inn á harðadisknum. En þegar ég ætlaði að opna skrárnar tilkynnti explorer mér að ég hefði ekki heimild til að nota skrárnar. Þá prófaði ég allt sem mér datt í hug. Lét scandisk keyra á diskinn, keyrði Ace Utilities og hreinsaði registry-ið. Leitaði loks á netinu og sá að þetta tengdist oft skilgreiningu á notenda en þar sem ég er eini notandinn á þessa tölvu fannst mér þetta ekki eiga við. Ákvað samt að prófa þetta og lét möppuna vera aðgengilega á innanhúsnetinu og vit menn ég gat gert allt sem ég vildi við skrárnar.Þar sem mér fannst þetta ekki vera nægjanlega góð lagfæringi hélt ég áfram að fikta. Af einhverjum ástæðum endurskýrði ég möppuna og viti menn allt í einu fór allt að virka eins og ekkert hefði í skorist. Það er akkúrat á svona stundum sem ég fer á nostalgíutripp og hugsa um þá gömlu góðu tíma þegar ég átti Apple.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home