20.7.06

Matarboð og ég vildi að það væri matarboð...

Síðustu dagar eru búnir að vera frekar rólegir. Skólin er ekki komin almennilega í gang. Það er varla að kennarar hafi sett fyrir þessa fyrstu daga. Hérna hefurðu tvær vikur til að "lagfæra" skráninguna þína og því er oft þeir nemendur sem mæta í fyrsta tíman ekki endilega þeir nemendur sem verða út önnina. Ég mun þó hafa eitthvað til að lesa yfir helgina en ég mun líka hafa nægan tíma til að skoða mig um.

Á þriðjudaginn bauð Nacho mér í mat ásamt fullt af fólki sem hefur dvalið hérna á Railway Campus síðustu mánuði. Þetta var mjög gaman. Fyrst var sameinast að fara út í Foodtown til að versla í matin, þar var bara raðað í körfurnar og reynt að hafa það þannig að hver karfa kostaði jafn mikið. Þegar við komum til baka á campusinn var safnast saman í eldhúsið og þar skipaði Nacho fyrir og eldaði 3 paellas, 2 sjávarrétta og eina kjúklinga. Óhætt að segja að þetta hafi verið skemmtilegt en leiðinlegast er þó að flest allir í þessu boði eru að fara heim fljótlega í næsta mánuði og var þetta að mörgu leyti kveðjuhóf þessa hóps.

Ég er búin að mæta núna í tvo kúrsa, annars vegar framkvæmdafræðina sem var á mánudaginn og síðan var Transportation Planning á þriðjudaginn. Ég veit eiginlega ekki alveg hverng best er að kalla hann á ástkæra en hann fjallar um líkanagerð í gatnahönnun. Ég held að það verði mjög áhugavert að taka hann sérstaklega þar sem hann fjallar um hluti sem ég hef ekki kynnst áður. Í mínu námi hefur aðallega verið að fjalla um efnið sem notað er og hvaða vegtegund eigi við viðkomandi umferð en aldrei hvernig þú spáir fyrir um viðkomandi umferð.

Skemmtilega er að kennarinn í þessum kúrs er nýkomin af ráðstefnu á Íslandi. Ráðstefna sem var haldin við Háskóla Ísland viku áður en ég fór út. Kennaranum fannst þetta frekar fyndið þegar við vorum að kynna okkur í tímanum. Kennarinn er frá Hong Kong og verður að segjast að ég muni hlæja að henni í vetur, það er eitthvað við hvernig hún talar og hagar sér í tímanum sem lætur mann fylgjast vel með til að vera viss um að missa ekki af neinu skrýtnu sem fram fer.

Annars hafa síðustu tveir dagar verið frekar ómerkilegir. Maður er ekki ennþá búin að kynnast mikið af fólki og því hefur maður eytt dágóðum tíma í að lesa og leika sér í tölvunni. Ég neyðist víst örugglega bráðlega að gera eitthvað í þessu þar sem ég verð fljótlega búin að klára lesefnið mitt og fá leið á tölvunni. Reyndar mér til varnaðar má segja frá því að síðustu tveir dagar hafa einmitt minnt mann á að hér sé ekki sumar. Loksins er komið veður sem er verra en heima. Reyndar var mjög áhugavert að kíkja aðeins út í rigninguna í gær því það er sjaldan sem maður lendir í alveg lóðréttri rigningu.

Hef reyndar ekkert kíkt á veðurspána, en ég ætla að vona að það viðri vel til loftárása um helgina. Stefnan er alla vega að skoða bæinn meira og kannski að fara að læra á þetta blessaða almenningssamgöngukerfi.

2 Comments:

At 11:22 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Heill sé þér dreng, gaman að það sé nóg að gera þarna og að fólkið á campusnum sé í sambandi. Hvernig er samt að heita Nacho... og ef maður segir á ensku, yes I'm going to Nachos place... muaha.. leikur að orðum hér. Hafðu það gott, ég er að fara kaupa mér tölvu í dag og kaupi þá líklegast headsett, þannig að maður verður orðinn algjörlega epískur og getur spjallað við þig.

 
At 4:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

hæ hæ, þetta matarboð hljómar algjör snilld. Þú sem íslendingur ættir að geta þolað smá lóðrétta rigningu, það ætti meira að segja að gefa þér svona opening line í samtölum við aðra "icelandic people swim in a rain like this, we are just tougher then other people in other countrys". Annars ætla ég að ræna headsettinu hans Agga svo ég geti spjallað við þig af og til.

 

Skrifa ummæli

<< Home