28.7.06

Bókakaup og grasagarðurinn

Fyrir mánudaginn þarf ég að vera búin að lesa 3 kafla í kennslubókinni í "Project Management 2" kúrsinum. Þess vegna þurfti ég að fara í leiðangur í dag. Eina sem ég vissi um bókina sem ég þurfti að kaup var að hún fæst í verslun sem heitir Tech Books og er í Newmarket. Newmarket er eins og nafnið gefur til kynna verslunarsvæði fyrir sunnan miðborgina. Svona svipað og Skeifan í Reykjavík. Reyndar virðist vera meira um tískubúðir og því um líkt heldur en í Queen Street. Fyrst þegar ég heyrði um þetta svæði fannst mér einhvern vegin eins og það væri verið að tala um verslunarmiðstöð og því var ég ekkert að fletta upp nákvæmari staðsetningu á versluninni. Þar sem ég er mjög heppin maður þá rambaði ég á búðina án þess að hafa mikið fyrir því.

Á leiðinni til baka labbaði ég í gegnum grasagarð Auckland búa. Í sjálfu sér er grasagarðurinn sjálfur ekkert svo stór en í tengslum við hann er stórt svæði af sparkvöllum bæði fyrir knattspyrnu og rugby. Nýja Sjáland er mjög vel tilfallið við ræktun á ýmsum hlutum og rakst ég meðal annars á Dúfutré í miðjum garðinum....

Rétt hjá dúfutréinu var held ég hið "ultimate" klifurtré. Myndin sem ég tók af því er ekki alveg nógu góð en menn geta rétt ímyndað sér hve gaman það væri að vera lítill aftur og príla aðeins í því. Persónulega hefði ég alla vega verað til að flytja það í tíma og rúmi í garðin í Langholtsveg 192.

Í garðinum var allskonar dýralíf (sá aðallega fugla af ýmsum gerðum en ein rotta var að þvælast þarna líka, ég reyndi að taka mynd af henni en hún var fljót að koma sér í burtu þegar hún heyrði mig bisast við að breyta um linsu). Þarna á vappi voru síðan íþróttamannslegavaxnar endur og það var ekki laust við að óeðlilega mikið af munnvatni myndaðist þegar ég labbaði fram hjá þeim.

Ég er síðan búin að finna staðin sem ég mun eyða mestum tíma mínum á. Á reyndar eftir að finna út hvenær dags er best að mæta en í grasagarðinum er ekta keiluspils klúbbur. Auðvitað sem hefðarmaður verður maður að taka þátt...

3 Comments:

At 1:14 e.h., Blogger Ella said...

Oh, klifurtréið í garðinum við Langholtsveg 192 var bara snilld! Ég er ekki enn búin að fyrirgefa garðyrkjumanninum fyrir að eyðileggja tréið!!!!

 
At 2:07 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ljúfar minningar, ljúfar minningar, klifurtréð við Langholtsveg 192. Þú verður að gera það fyrir mig og Ellu að klifra pínulítið í því, svona for old time sake.

 
At 9:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já Halli minn það var vinsælt gamla góða klifurtréð í garðinum á L-192 og alltaf man ég þegar gömlu kellurnar í hverfinu voru að skamma ykkur fyrir að vera að klifra í trénu hehe, en það stóð fyrir sínu gamla góða klifurtréð og mikla skemmtun veitti það ykkur systkynunum. Svo þú verður nú að fara að ósk Tótu og taka smá skrens í trénu og láta taka mynd af þér. gætir í leiðinni gripið eina önd með þér heim og eldað appelsínu önd.

 

Skrifa ummæli

<< Home