29.7.05

Veikindi

Ef ykkur finnst leiðinlegt að vera veikur þá ættu þið að prófa að vera veikur upp á fjöllum. Var eitthvað búinn að finna fyrir óþægindum á miðvikudagsmorgunin en hugsaði ekki mikið um það þá. Nóg var að gera sérstaklega lá Jon Parry, aðalkallinn á svæðinu, á mér að klára að mæla snið inn í Adit 2.
Að hanga í göngum með kvef er ekki það sniðugasta sem maður gerir. Loftið mettað af raka og ryki. Eina leiðin til að vinna þarna inni er í vöðlum og þykkri úlpu, og þar sem hitinn inni er um 15°C þá svitnar maður rosalega. Auðvitað byrjaði ég að finna þegar leið á daginn að ég væri slappur. Síðan þá hefur heilsunni hrakað stöðugt og það endaði með því að ég fór til læknis í hádeginu. Hann gaf mér fúkkalyf og sagði mér að leggja mig að minnsta kosti í 2 tíma eftir hádegi, sem ég gerði.
Núna er ég þó komin út á skrifstofu aftur því ég nenni ekki að hanga inni í herberginu mínu í allan dag. Ætla þó ekki að fara út að mæla heldur reyna að koma frá mér þeim verkefnum sem liggja fyrir hérna inni.

1 Comments:

At 12:20 e.h., Blogger Ella said...

Þú átt alla mína samúð... ég er líka búin að liggja í flensu, var allan daginn í rúminu í gær og Hrafnkell sá um litla ofvirka dýrið! Ætli þú verðir ekki dottinn ofan í skrifborðið mjög fljótlega eða skriðinn í koju!!!

 

Skrifa ummæli

<< Home