Frændur og lögregluríki
Fór og hitti Ingva Þór í gær. Fékk að hætta snemma í vinnuna og keyrði síðan niður á Egilstaði þar sem við fengum okkur pizzu og horfðum á Kaunas-Liverpool. Það var mjög gaman að hitta hann og var mikið spjallað um fortíð, nútíð og framtíð. Vorum reyndar báðir mjög þreyttir þannig að síðasta partinn voru við eiginlega hálf sofandi fyrir framan sjónvarpið. Núna eru það eiginlega bara brúðkaup sem maður hittir frændurnar tvo í því næsta skipti sem við hittumst verður 27.ágúst í brúðkaupinu hjá systu.Hérna upp á fjöllum er varla þverfótað fyrir lögreglumönnum (m.a. pabba hans Bjössa). Eftir að mótmælendurnir fóru að grípa til ofbeldis og að ósk Impregilo og Landsvirkjunar eru komnir hérna yfir 10 lögreglumenn. Það liggur við að það séu fleiri löggur en eftirlitsmenn hérna. Er frekar skondið að fara í mat því í fyrsta skipti síðan ég byrjaði að koma hérna þarf maður að bíða í langri röð eftir einhverju í gogginn.
Verð að segja eitt að lokum, þessi fjölgun lögreglumanna er álíka fáránleg og mótmælin í heild sinni. Þetta er orðið bara einn allsherjar farsi og ég tala nú ekki um fréttaflutninginn af þessu. Fyrir okkur starfsmennina hérna er þetta hin ágæta skemmtun og ekki líður á löngu áður en einhver opnar veðbanka fyrir hvað muni gerast á morgunn.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home