Eitthvað út í loftið
Þori ekki annað en að setja smá inn og segja frá því að ég er enn á lífi. Ég er þó annsi stressaður í próf undirbúningnum. Ég hef enga hugmynd afhverju það er þar sem ég er venjulega aldrei stressaður. Kannski er það tilhugsunin um að þurfa að gera allt saman á ensku, kannski er það bara nýjabrumið við að gera þetta við nýjar aðstæður eða ég veit ekki hvað. Eina sem ég veit er að ég verð mjög fegin eftir 10 daga þegar þetta verður afstaðið.
Mamma og pabbi koma síðan 3 dögum eftir að prófunum líkur og því er smá spenningur þar líka. Ég er búin að borga hótelið þeirra og panta bílinn. Þeir hjá bílaleigunni voru einmitt svo almennilegir þegar þeir heyrðu um ökuskírteinið mitt að þeir sögðu mér bara að láta pabba minn senda mér skannaða mynd og þeir myndu lána mér bílinn svo ég gæti sótt þau út á flugvöll. Ég er síðan búin að panta borð fyrir okkur um kvöldið á veitingastað sem er upp í Skytower. Framhaldið verður síðan 2 dagar fyrir norðan Auckland og 3 dagar fyrir sunnan. Þar er ég þó ekki búin að panta neina gistingu en þar sem þetta er off season þá verður það ekkert mál að fá slíkt.
Annars rakst ég á myndband í dag sem var annsi gott. Ímyndið ykkur ef Höddi Magg væri svona.

8 Comments:
Gefðu mér upp fax-númer og ég skal senda þeim formlega staðfestingu á ökuréttindunum
Kv.
Árni E. A.
líst vel á þennan stað, vatnið er strax farið að renna í munninum á mér. Gangi þér vel í prófunum svo þú verðir ferskur þegar við mætum á svæðið.
Kveðja frá mömmu í ömmuleik
Dularfulla kommentahvarfið! Við mamma skiljum ekki af hverju kommentið hennar birtist ekki á síðunni....
Árni takk fyrir gott boð. En ég spurði þá í dag og þeir sögðust ekki þurfa það. Kannski væri samt réttast að senda þeim formlega staðfestingu, getur varla skemmt fyrir. Fax númerið þeirra er 09 - 373 3820 . Það vantar bara að setja landsnúmerið sem ég er ekki viss hvað er.
Jæja, þá er ég búin að skila foreldrunum í flug til London... og áfram til Ástrallalíu...
Staðfesting á ökuréttindum fór í faxi í morgun.
Kv.
Árni
Hvernig ganga prófin??
Prófin ganga ágætlega en síðasta er á morgun. Mun blogga langt og lengi þá eða á miðvikudaginn.
Skrifa ummæli
<< Home