Kárahnjúkar
Í júlí er skammt stórra högga á milli hjá mér. Varla búinn að koma sér fyrir eða skoða íbúðir þá er maður rifinn í burtu og sendur upp á fjöll. Núna er ég komin upp á Kárahnjúka til að leysa mælingamannin af á meðan hann er í fríi. Auðvitað kemur maður hérna í mestu flóðunum en ég á ekki von á því að ég þyrfi að fylgjast eins grant með þessu núna eins og ég þurfti í fyrra.Ætlunin er að reyna að hitta á frændurnar niðri á Seyðisfirði á morgun eða miðvikudaginn. En á fimmtudaginn eru þeir að fara í burtu, Ingvi í Ásbyrgi og Ómar til eyja. Náði ekki að hitta á þá síðasta sumar en núna verður þetta vonandi ekki eins asnalegt.
Veðrið er ekki eins gott og það var í Kosovo, en fyrir 600 m yfir sjávarmáli og norður í ballarhafi er þetta ágætt. Um 15°C, skýjað og lítill vindur. Var reyndar að vonast eftir riginungu en mér virðist ekki verða að ósk minni, alla vega þessa vikunna.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home