Síðasta bloggið....fyrir Samóa!!!
Yep, þið lásuð rétt. Eins og kom fram í síðustu færslu er undirritaðu bara á leiðinni á sólarströnd í heila viku. Þar verður lagst á lægra plan hvað leti varðar heldur en síðustu vikur, reyndar hef ég stjórnarskrárbundin rétt til að liggja í leti á sólarströnd en ég ætla nú ekki að gera mál út úr því. Fyrir alla þá sem þekkja mig vita að ég er ekki maðurinn til að liggja á sólarströnd allan daginn til að ná mér í lit svo ég er búin að finna mér ýmsa hluti til að eyða tímanum við.
Í fyrsta lagi ætla ég að láta aldargamlan draum rætast og taka próf í köfunarfræðum. Nálægt littla strandarkofanum mínum býr þessi almennilegi fransmaður sem ætlar að kenna mér í skiptum fyrir nokkrar kókoshnetur. Þar sem gengið á kókoshnetum er bara í nokkuð góðu lagi er þetta tilboð sem ekki er hægt að hafna. Námskeðið mun reyndar taka bróðurpartinn af tímanum mínum þarna en hvernig er hægt að hafna að eyða 4 dögum neðansjávar?
Hvað varðar restina af tímanum á bara eftir að koma í ljós hvað verður gert. Einhvern daginn mun ég hitta á Stephan og Steffi, Railway vinir, og í boði á fjölskyldunni sem á strandkofann minn er eyjaferð þar sem 1 degi er eytt í það að sýna túristum, eins og mér, allt það skemmtilega á eyjunni. Einn partur af þeirri ferð er að synda með skjaldbökum og það verður örugglega erfitt að koma mér upp úr þeirri laug. Ég veit reyndar ekki hvort það er hægt en það kemur vel til greina að reyna að leigja sér scooter til að skoða sig um.
Gekk frá tveimur málum í dag sem viðkoma skólanum. Annars vegar kláraði ég skráninguna í námskeiðin og hinsvegar kom ég einkununum mínum í póst til Íslands. Það var nú ótrúlegt vesen að koma mér í inn í námskeið fyrir næstu önn. Það er víst starfsmanna vesen í öllum deildunum þar sem ég gæti valið mér kúrsa svo það er lítið um val. En mér tókst að lokum að koma mér í 4 frekar áhugaverða. Reyndar eru þeir ekki fyrsta val en góðir engu að síður. 2 þeirra eru "block courses" þar sem öll tímasetan er í 2 hollum, þ.e. allt efnið er kennt 3 daga í senn frá 10-17 og þessar tarnir eru tvisvar fyrir hvorn kúrsinn. Þetta þýðir að eins og síðast verður ekki mikið um eðlilega tímasetu.
Þessar einkunnir ætla að verða algjört vesen. Í fyrsta lagi hélt ég að þetta gerðist sjálfkrafa en það er víst ekki rétt nema í lok dvalarinnar. En þar sem ég er fátækur námsmaður sem þarf á lánum að halda þurfti ég að koma þessu í verk sjálfur. Reyndar er þetta (ef það sem ég sendi heim er rétt) ekkert svo flókið þegar á hólmin var komið en til að fá það á hreint hvað ég þyrfti að gera þurfti ég að senda 4 mismunandi manneskjum e-mail. Svo núna sit ég bara með krosslagða putta og vona að námslánin mín verði komin inn á heftið mitt í næstu eða þar næstu viku.
Þannig lýkur hinni hinstu færslu....í bili. Ég skal senda ykkur öllum sólarhugskeyti.

2 Comments:
Góða skemmtun á Samóa! Öfund öfund! Þetta verður geggjað hjá þér!!! Mátt alveg senda nóg af sól hingað á lasarusastaði!
Mig langar, mig langar, mig langar meeeeeeeeeeð. Og ég vil líka smá sól ekki mikið bara ponsu, rétt til að vera brún á litlaputta.
Anywhoose skemmtu þér óóóóótrúlega vel á Samóa, taktu fullt af myndum og ekki kafa yfir þig.
Skrifa ummæli
<< Home