Heim í heiðardalinn
Jæja, núna er maður komin aftur heim í siðmenninguna í Auckland. Við höfum reyndar verið að grínast með það, sérstaklega eftir að hafa verið á suðureyjunni, að borgin sé eiginlega borg í Asíu en ekki "Vestrænu" landi. En engu að síður þá ákváðum við að stytta ferð okkar um nokkra daga eftir að mikil rigning ýtti undir hatur okkar að hafa öll fötin okkar í einum poka (sitthvorum fyrir þá sem kunna ekki að lesa). Einnig vorum við held ég algjörlega búnir að tæma allar möguleigar samræðumöguleika. Síðustu dagarnair snerust reyndar algjörlega að hlusta á Jörn lýsa yfir ást sinni á Jen og hve ómögulegur hann yrði næstu önn þegar hún verður ekki hérna.
Eftir að allt adrenalínir var tæmt þá þræddum við suðureyjunna á leið okkar norður til Picton og ferjunnar yfir á norðureyjuna. Kíktum á Mt. Cook á leið okkar til Christchurch, þar sem næstum því eina almennilega sem við sáum var kvikmyndin Borat. Svona fljótt á litið virtist Christchurch ekki vera svo merkilega, kannski vorum við bara byrjaðir að hlakka of mikið til að komast á hina eyjuna að við gleymdum að opna augun.
Mér tókst þó að skreppa stutta ferð til Lyttleton sem er hafnarbærinn fyrir Christchurch. Flest allir sem lesa þetta hafa ekki hugmynd af hverju ég fór þangað, alla vega hló Jörn mikið að mér. Þessi bær var notaður til að taka upp myndina The Frighteners. Eina sem ég þekkti úr þeirri mynd var kirkjugarðurinn og þar sem mér fannst ekki rétt að taka myndir þar voru engar myndir teknar.
Eftir að við komum til Wellington keyrðum við beint til Mt. Egmont á vesturströndinni. Fjallið hefur verið borið saman við Mt. Fuji í Japan og var meðal annars notað sem slíkt í myndinni Last Samurai með Tómasi Krúsa. Fjallið var þakið skýjahulu og eina góða við staðinn var sundlaugin sem við slöppuðum af í um kvöldið.
Daginn eftir var fjallið ennþá hulið og við tókum þá ávkörðun að keyra beint til Rotorua og stytta ferðina um 1 dag. Við keyrðum í gegnum sveitavegi, sem voru algjör snilld. Og meðal annars keyrðum við í gegnum Lýðveldið Whangamomana. En það er pínkulítill bær sem líkaði eitthvað illa þegar þeir voru færðir á milli stjórnunarsvæða að þeir lýstu bara yfir sjálfstæði. Engin var á ferli í bænum svo þetta var lítið annað en húmor að keyra þarna í gegn.
Þegar við komum til Rotorua var hellidemba. Þar sem ég hafði komið þarna tvisvar áður var það upp á Jörn komið hvað við myndum gera. En eftir að hafa lesið veðurspánna dattur allur botn úr plönunum okkar og við keyrðum bara í einni strykklotu heim til Auckland. Er núna að koma mér aftur fyrir og reyna að komast í einhvern gír fyrir jólin. Hef reyndar verið dáldið latur og hef ekki haft orku í að velja út þær myndir sem ég ætla að setja inn á vefinn. Kannski að það gerist á morgun....
p.s Myndband fyrir þá sem vilja sjá mig gera skemmtilegan hlut.

4 Comments:
Elskan mín, settu þær bara allar!!!
Hlakka til að skoða myndir...
Ég sé ekkert myndband!!!!
Þú ýtir á hlekkin, skrifar þá þrjá stafi sem síðan biður þig um að gera í auðan kassa, bíður í 45 sekúndur og þá færðu upp download hlekk sem þú ýtir á.
Elsku Andfættlingur... voðalega þarftu að gera þetta andfætlingslegt (les öfugsnúið) afhverju setur þú ekki þetta á Gallery? það á að taka við allt og öllu, Kvikmyndum líka... það er enn ca. 250GB laus til afnota fyrir fjölskylduna... :) Annars getur Nojarinn kennt þér nokkur tölvuvæn handtök svo að þú getir sett slíkt á einfaldari stað... bara segja frá...
Skrifa ummæli
<< Home