6.2.07

Hér er ég, góðan daginn, daginn, daginn..

Jæja þótt að lítið hafi verið af bloggfærslum er ég nú ekki alveg dauður úr öllum æðum. Ég hef bara verið í svo ótrúlegu letilífi að ég hef ekki einu sinni nennt að logga mig inn á bloggið. Einnig þegar maður hefur beint samband við þær persónur sem lesa bloggið yfir höfuð þá minnkar áhuginn líka.

Ég veit að þið eruð öll óþreyjufull eftir fréttum en þær eru þó af skornum skammti. Síðustu vikur hafa bara verið tekið ótrúlega rólega. Tímanum hefur verið skipt á milli tölvuleikja, strandferða og almenningsgarðsferða. Einnig datt ég um daginn inn á alþjóðlega hátið götulistamanna sem var mjög gaman. Verð þó að viðurkenna að ég hef ekki tekið eina einustu ljósmynd af mínum gjörðum þar sem einhvern veginn hefur myndavélin gleymst alltaf.

Ég get þó sagt frá því að ég er fluttur inn í nýja íbúð. Nú bý ég ekki lengur á campus þar sem meðalaldurinn er 25 ár og stjórnendurnir koma fram við alla sem 14 ára heldur bý ég í asískri blokk mjög nálægt Skýjaturninum. (Fyrir þá sem ekki geta lesið kaldhæðnina í þessari setningu þá eru 75% íbúa í blokkinni af asísku bergi brotnir.) Ég og Jörn fundum þetta og smelltum okkur á þetta þó að íbúðin er svo lítil að það er varla hægt að kalla hana íbúð. Ég efast um að hún sé mikið meira en 35m2 en hún gerir sitt gagn og einnig eru leigusalarnir okkar alveg frábærir sem var eiginlega aðal ástæðan fyrir því að við tókum hana. Fyrir þá sem hafa áhuga þá er nýja heimilsfangið mitt:
Hallvarður Vignisson
Apartment 324
72 Nelson Street
Downtown
Auckland
New Zealand

Ég er líka búin að panta mér flugmiða til Samoa í næstu viku og mun liggja þar í leti í heila viku. Stefnan er reyndar að taka loksins köfunarprófið sem mig hefur lengi langað til. Ég mun búa á "Beach Fale" sem eru opin hús beint á ströndinni. Hlakka mikið til og ég skal lofa miklu myndaflóði þegar ég kem til baka. Það verður lítið um internet samband og GSM sambandið er víst þeim mun minna.

p.s. Gaman að segja frá því að þegar ég tók myndirnar áðan af íbúðinni þá var það í fyrsta skipti síðan ég flutti að ég kom við myndavélina mína.

4 Comments:

At 8:31 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sæll vinur
Til hamingju með nýju íbúðina þó lítil sé, en er þetta ekki bara huggulegt að búa þröngt?
Þó maður sé nú í sambandi við þig þá er nú alltaf gaman að lesa bloggið frá þér og þú mættir nú vera duglegri við að blogga. Gaman hjá þér að fara til Samóa það hlýtur að vera spennandi staður eða einhvernveginn finnst mér það.
Og svona til að staðfesta við þig þá er búið að ganga frá því að við fáum bústaðinn í Hlöðuvík á tilsettum tíma þannig að afmælinu er bjargað, Ella og Hrafnkell ætla að koma lika því þetta passar alveg inní myndina hjá þeim. Ég er viss um að þetta verður ferð ársins. Vinnuferðin norður verður líklega um hvítasunnuna þannig að þú nærð því ekki að koma með og þess sakna ég nú soldið mikið að hafa þig ekki með. Gangi þér vel vinur og skemmtu þér vel
kv Pabbi

 
At 1:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

sammála síðast ræðumanni um að það sé skemmtilegt að fá blogg svona af og til.
Ég og Aggi komum örugglega líka til Hlöðuvíkur eins langar okkur að sækja þig til USA, láttu okkur vita þegar þú ert kominn með einhverja dagsetningu á heimferð.
ps. það er alltaf stemming að búa þröngt, það verða alltaf skemmtilegri sögur úr því. Taktu það frá manneskju sem hefur búið í stóru úrvali íbúða.

 
At 9:37 f.h., Blogger Ella said...

Júbbí, nýtt blogg!!!

Oh, öfund öfund. Er að skoða myndirnar frá Samóa. Má ég ekki bara koma með???

Við sjáumst bara norður á ströndum í staðin!!!

 
At 9:40 f.h., Blogger Ella said...

Pssstt! Þú verður bara að betrekkja veggina í íbúðinni með pósterum og myndum til að komast yfir innilokunarkenndina.

 

Skrifa ummæli

<< Home