Vespur, drulla og forgangsröðun
Fyrsti morgunin byrjaði helvíti vel, hugurinn leitaði aftur til þýskalandsferðar fjölskyldunnar fyrir 22 árum. Höfðum fengið úthlutað gámi til að geyma tækin okkar í. Ég fór út í hann á mánudagsmorgninum og náði í GPS-tækin svo hægt væri að stilla þau fyrir mælingarnar. Þegar ég lokaði gámnum fann ég fyrir snertingu á handarbakinu og sá þá stærðar vespu sitja þar í mestu makindum og munda broddinn. Ég náði að hrista hana af mér og hopa frá gámnum. Þegar betur var að gáð höfðu vespurnar búið sér til bú í gati sem var á hurðinni á honum. Það var frekar fyndið að sjá fólk fara í gáminn það sem eftir var dagsins. Daginn eftir var búið að eyða búinu.Til að við getum mælt upp flugvöllinn þurfti að koma fyrir 15 fastmerkjum á víð og dreif um flugvöllinn. Jarðvegurinn hérna á flugvellinum er þykkur leir sem er eins og besta lím þegar hann blotnar. Nauðsynlegt var að koma fastmerkjum niður í jörðinni ekki nær flugbrautinni en 45 m svo við þurftum að þramma í leirnum þangað. Þegar komið var aftur að flugbrautinni hafði maður þyngst um 5 kg af leirdrullu sem safnaðist undir skónna. Var frekar kómískt að horfa á okkur reyna að hreinsa drulluna og á endanum var nauðsynlegt að grípa til háþrýstidælu til að hreinsa almennilega undan skónum.
Þegar við komum í húsið sem við fengum til afnota á sunnudagskvöldið var klukkan orðinn frekar margt. Á meðan að eigandinn var að sýna okkur húsið og hvernig allt virkaði fór rafmagnið af. Við hlógum dáldið að því á meðan eigandinn kveikti á rafmótor sem hann átti. Með ljósinu sem hann gaf gátum við komið okkur fyrir og farið að sofa. Næsta dag þegar við komum heim kom eigandinn og sýndi okkur stoltur rafgeymi sem hann hafði keypt svo að raftæki sem nauðsynlega þyrftu á rafmagni að halda fengju það. Við hann hafði hann tengt ískápinn og sjónvarpið, tveir af mikilvægustu hlutunum í húsinu.
1 Comments:
Íííkk.... vertu ekkert að rifja upp helv... vespusöguna!!! Ég sakna þeirra ekkert!! (en hefði samt viljað sjá ópin og hlaupin á fólkinu sem fór í gáminn!!!) Híhíhí...
Skrifa ummæli
<< Home