Kosovosögur
Nú ætla ég aldrei aftur að ferðast á almennu farrými. Fékk að kynnast því hvernig það er að ferðast á Saga Class og er það ótrúlegur munur. Sérstaklega er gott að bíða í flugstöðunum, þótt ég hafi ekki fengið "en pölse" í Köben. Reyndar reyndu flugfreyjurnar í Austrian Airways að eitra fyrir okkur með einhverju forrétt sem bragðaðist eins og ég veit ekki hvað.Fengum hús út af fyrir okkur rétt hjá flugvellinum og er það helvíti fínt. Frekar skrýtið samt að sitja í rólegheitunum um kvöldið þegar rafmagnið fer allt í einu af, því að í Kosovo hefur fólk rafmagn í 5:1 tíma, það á í 5 og af í 1 klukkutíma. Okkar tími lendir akkúrat á milli 11 og 12 á kvöldin svo það minnir mann bara á að fara snemma að sofa.
Vinnan er hrikaleg í svona veðri, um 30°C og logn og vinnustaðurinn er í 500 m frá einhverjum skugga. Mundi samt eftir að bera á mig sólaráburð sem er annað en Jón Þór gerði svo hann er orðinn frekar rauður núna. Í svona hita er maður alveg að sofna og í báðum hádegunum síðan ég kom hef ég nærri sofnað fram á borðið. Hitinn hefur líka mikil áhrif á líkamann t.d. í morgun var ég orðinn ansi lágur í blóðsykri svo maður varð að redda því með gosi og súkkulaði.
Er á leið út í mælingu núna, en ætla að reyna að koma inn nokkrum myndum og frásögnum af atvikum hérna frá "átakasvæðinu".
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home