Annar jóladiskur
Fann annan skemmtilegan jóladisk. Music From The O.C.: Mix 3 -- Have a Very Merry Chrismukkah. Reyndar er eitt lag það sama og á Cool Cool Christmas og nokkur sem hafa komið út á öðrum diskum. Þetta er reyndar bara 9 laga diskur en þarna er lag með Eels, Christmas is Going to The Dogs (úr myndinni Grinch) sem er algjör snilld, lagið Rock of Ages með Ben Kweller er líka gott. Þarna er cover af Last Christmas með Jimmy Eat World og cover af Merry Xmas Everybody með Rooney.Þegar maður finnur svona hluti þá fer maður að hugsa afhverju er þetta ekki spilað í útvarpinu í staðinn fyrir lögin sem maður heyrir á hverju ári. Fór að spá í þetta flest þessara laga sem maður heyrir í útvarpinu hafa verið í spilun frá því að maður man eftir sér. Af hverju ekki að breyta til svona einu sinni og spila eitthvað nýtt. Þetta er kannski ástæðan fyrir jólaleiðanum sem margir finna fyrir. Eða með orðum Pablo Francisco (paraphrased): "It's the same crap you have listened to over and over again."
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home